Guehi vill fara til Liverpool - Viðræður við Gordon ganga illa - Man Utd skoðar stjóra
banner
   fös 27. september 2024 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Þriðji sigur Mallorca í röð
Mallorca
Mallorca
Mynd: EPA

Valladolid 1 - 2 Mallorca
0-1 Cyle Larin ('59 )
0-2 Valery Fernandez ('83 )
1-2 Ivan Sanchez ('90 )


Mallorca vann þriðja leik sinn í röð þegar liðið lagði Valladolid af velli í kvöld.

Cyle Larin kom Mallorca yfir en þessi kanadíski framherji var á láni hjá Valladolid frá Club Brugge seinni hluta síðasta tímabils og skoraði átta mörk í 19 leikjum en var svo seldur frá Belgíu til Mallorca í sumar.

Valery tryggði Mallorca sigurinn en hann vann boltann af varnarmanni Valladolid við vítateiginn og skoraði af öryggi einn á móti markmanninum.

Ivan Sanchez skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan vítateiginn fyrir Valladolid í uppbótatíma en nær komust þeir ekki.


Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 7 7 0 0 23 5 +18 21
2 Real Madrid 7 5 2 0 16 5 +11 17
3 Atletico Madrid 7 4 3 0 11 3 +8 15
4 Mallorca 8 4 2 2 8 6 +2 14
5 Villarreal 7 4 2 1 14 14 0 14
6 Athletic 7 4 1 2 11 7 +4 13
7 Osasuna 7 3 2 2 8 11 -3 11
8 Alaves 7 3 1 3 11 10 +1 10
9 Vallecano 7 2 3 2 8 7 +1 9
10 Betis 7 2 3 2 7 7 0 9
11 Celta 7 3 0 4 14 14 0 9
12 Girona 7 2 2 3 8 10 -2 8
13 Sevilla 7 2 2 3 7 9 -2 8
14 Espanyol 7 2 1 4 7 11 -4 7
15 Leganes 7 1 3 3 4 8 -4 6
16 Real Sociedad 7 1 2 4 3 7 -4 5
17 Valencia 7 1 2 4 5 10 -5 5
18 Valladolid 8 1 2 5 4 17 -13 5
19 Getafe 7 0 4 3 3 6 -3 4
20 Las Palmas 7 0 3 4 8 13 -5 3
Athugasemdir
banner
banner
banner