Andros Townsend, fyrrum landsliðsmaður Englands, telur að það verði erfitt fyrir Trent Alexander-Arnold að hafna Real Madrid.
Samningur Alexander-Arnold hjá Liverpool rennur út næsta sumar og enn bólar ekkert á því að hann muni framlengja.
Samningur Alexander-Arnold hjá Liverpool rennur út næsta sumar og enn bólar ekkert á því að hann muni framlengja.
Hann hefur verið orðaður við Real Madrid og Townsend telur að það verði erfitt að hafna því ef spænska stórveldið kemur inn í myndina.
„Ég held að hann vilji ekki fara frá Liverpool, og hann sé ekki að leitast eftir því að fara," sagði Townsend við breska ríkisútvarpið.
„En ef það er áhugi frá Real Madrid, þá held ég að þú getir ekki hafnað því. Hann er búinn að vinna Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina með Liverpool. Hann er búinn að vinna allt og ég held að þú getur ekki hafnað Real Madrid."
Athugasemdir