Rashford, Isak, Trossard, Martinelli, Osimhen, Adeyemi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. febrúar 2025 21:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski bikarinn: Rashford lagði upp í sigri Aston Villa - Asensio með tvennu
Marco Asensio skoraði tvennu
Marco Asensio skoraði tvennu
Mynd: EPA
Aston Villa 2 - 0 Cardiff City
1-0 Marco Asensio ('68 )
2-0 Marco Asensio ('80 )

Aston Villa er komið áfram í enska bikarnum eftir nauman sigur gegn Cardiff á Villa Park í kvöld.

Heimamenn voru með öll völd á vellinum í fyrri hállfeik en var fyrirmunað að skora. Ollie Watkins fékk nokkur tækifæri til að skora en Ethan Horvath í marki Cardiff átti góðan leik í fyrri hálfleik.

Yfirburðir Villa héldu áfram í seinni hálfleik og þeim tókst loksins að brjóta ísinn þegar Rashford fékk góða sendingu í gegn og hann lagði boltann út í teiginn þar sem Marco Asensio mætti og setti boltann í netið.

Asensio innsiglaði sigurinn þegar hann skoraði með hnitmiðuðu skoti í nærhornið. Hann hefur skorað fjögur mörk í síðustu þremur leikjum sínum fyrir Aston Villa.
Athugasemdir
banner