Rashford, Isak, Trossard, Martinelli, Osimhen, Adeyemi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. febrúar 2025 23:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjubikar kvenna: ÍA með öruggan sigur á Gróttu
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
ÍA 3 - 0 Grótta
1-0 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('10 )
2-0 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('40 )
3-0 Erna Björt Elíasdóttir ('50 )

ÍA er með fullt hús stiga í B-deild Lengjubikars kvenna eftir sigur á Gróttu í þriðju umferðinni í kvöld.

Erla Karítas Jóhannesdóttir lagði grunninn að sigrinum í fyrri hállfeik.

Hún kom liðinu yfir snemma leiks og bætti öðru markinu við undir lok fyrri hálfleiksins. Staðan var 2-0 í hálfleik.

Það var síðan Erna Björt Elíasdóttir sem innsiglaði sigurinn eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik.

Eins og fyrr segir er ÍA með fullt hús stiga og er á toppnum en Grótta er í fimmta og næst neðsta sæti með þrjú stig.
Lengjubikar kvenna - B-deild
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍA 3 3 0 0 12 - 5 +7 9
2.    HK 3 2 0 1 7 - 6 +1 6
3.    Haukar 3 2 0 1 9 - 9 0 6
4.    ÍBV 2 1 0 1 4 - 3 +1 3
5.    KR 3 1 0 2 9 - 10 -1 3
6.    Afturelding 3 1 0 2 7 - 10 -3 3
7.    Grótta 3 1 0 2 3 - 6 -3 3
8.    Grindavík/Njarðvík 2 0 0 2 2 - 4 -2 0
Athugasemdir
banner
banner
banner