Rashford, Isak, Trossard, Martinelli, Osimhen, Adeyemi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. febrúar 2025 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Sex mörk í leik HK og Kára
Alexander Aron Davorsson er þjálfari Kára.
Alexander Aron Davorsson er þjálfari Kára.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 3 - 3 Kári
Mörk HK: Magnús Arnar Pétursson, Arnþór Ari Atlason, Birnir Breki Burknason.
Mörk Kára: Hektor Bergmann Garðarsson, Máni Berg Ellertsson, Sigurður Hrannar Þorsteinsson.

2. deildar lið Kára mætti Lengjudeildarliði HK í æfingaleik í Kórnum í gær. Lokatölur í leiknum urðu 3-3 en HK leiddi 2-0 í hálfleik.

HK féll úr Bestu deildinni síðasta haust og er spáð góðu gengi í Lengjudeildinni í sumar. Kári vann 3. deildina síðasta sumar og verður því í 2. deild í sumar.

Andri Júlíusson og Alexander Aron Davorsson eru þjálfarar Kára og Hermann Hreiðarsson er þjálfari HK.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner