Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. desember 2022 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Cooper ekki nógu sáttur - Forest ætlar að bæta við sig leikmönnum
Mynd: EPA

Nottingham Forest er nýliði í ensku úrvalsdeildinni en liðið er í næst neðsta sæti með 13 stig eftir 16 umferðir.


Gríðarlega miklar breytingar voru á hópnum í sumar og Steve Cooper stjóri liðsins er enn ekki nógu sáttur með hópinn og ætlar að bæta við leikmönnum í janúar.

„Fyrst og fremst ætlum við að sækja leikmenn sem styrkja byrjunarliðið. Kannski veriðum við að hugsa um að styrkja breiddina í einhverjum stöðum vegna meiðsla," sagði Steve Cooper.

„Við vorum að gera fína hluti fyrir hléið, ekki alveg þar sem við viljum vera, við erum enn þar sem við erum og við þurfum að gera miklu betur en við höfum gert hingað til."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner