Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. desember 2022 12:30
Elvar Geir Magnússon
Viðræður Arsenal um Mudryk halda áfram
Mynd: Getty Images
Arsenal heldur áfram viðræðum við Shaktar Donetsk um hinn 21 árs gamla Mykhailo Mudryk.

Shaktar hefur miklar mætur á Mudryk og verðleggur hann hátt. Félagið hefur þegar hafnað 57 milljóna punda tilboði.

Mudryk hefur sjálfur ýjað að því að hann vilji fara til Arsenal en hann setti inn mynd af sér á samfélagsmiðlum vera að horfa á 3-1 sigurleikinn gegn West Ham.

„Viðræður halda áfram. Í rauninni á ég símafund með Arsenal eftir nokkrar mínútur. Við höfum fengið tilboð en það eru ekki þær tölur sem við viljum sjá," segir Sergei Palkin, framkvæmdastjóri Shaktar.

Mudryk er með 10 mörk og 8 stoðsendingar á tímabilinu og segir Palkin að Shaktar sé tilbúið að hlusta á allar hugmyndir Arsenal. Það er þó ljóst að forseti félagsins, Rinat Akhmetov, mun eiga lokaorðið.

Arsenal vonast til þess að ganga frá kaupum á Mudryk í janúarglugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner