Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 31. desember 2022 16:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Alvöru áramótabomba" hjá Gray
Mynd: Getty Images

Demarai Gray var að jafna metin fyrir Everton gegn Manchester City með stórglæsilegu marki.


Gray átti skot úr kyrrstöðu og setti boltann glæsilega í samskeytin.

Tómas Þór Þórðarson lýsir leiknum á Síminn Sport og lýsti markinu fullkomlega þegar hann sagði að þetta væri „Áramótabomba." Alveg hreint stórkostlegt mark.

Þetta er gríðarlega sterkt fyrir Arsenal sem getur náð enn meiri forystu á toppi deildarinnar með sigri á Brighton í kvöld.

Það er hins vegar nóg eftir þar sem mikil töf hefur verið í síðari hálfleik og má búast við miklum uppbótartíma.


Athugasemdir
banner
banner
banner