Hafliði Breiðfjörð skrifar frá Laugardalsvelli
Helmingurinn af farangri íslenska landsliðsins varð eftir í Ríga þegar leiguvél Estonian Air flutti liðið til Íslands í gær.
Mikill hluti af takkaskóm leikmanna varð því eftir í Ríga og vegna þessa þurftu starfsmenn KSÍ að hafa hraðar hendur að útvega skó í gærkvöldi.
Adidas og Nike umboðin á Íslandi komu til hjálpar og opnuðu sérstaklega svo hægt væri að fá skópör fyrir landsliðsmennina en samtals þurfti að útvega 26 skópör.
Landsliðsmennirnir voru því klárir í slaginn þegar æfing hófst klukkan 11:30 í morgun og flestir í nýjum skóm.
Hlaðmennirnir í Ríga gerðu mistök sem gerðu það að verkum að aðeins helmingur farangursins skilaði sér til Íslands en búið er að gera viðeigandi ráðstafanir svo farangurinn á að skila sér í kvöld.
Íslenskir fjölmiðlamenn ferðuðust með í leiguvélinni frá Ríga í gær og farangur þeirra varð líka eftir í Ríga.
Athugasemdir