Ethan Mbappe, yngri bróðir Kylian, er mættur í treyju Lille en hann er nýr leikmaður félagsins.
Kylian, sem er einn besti leikmaður í heimi, yfirgaf Paris Saint-Germain á dögunum og gekk í raðir Real Madrid á frjálsri sölu.
Ethan, sem er 17 ára, var einnig hjá PSG en hann yfirgefur á frjálsri sölu og fer til Lille. Það kom aldrei til greina að hann færi með eldri bróður sínum til Madrídar.
Hjá Lille verður hann liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Hákonar Arnars Haraldssonar.
Ethan Mbappe spilaði fimm keppnisleiki með aðalliði PSG á síðustu leiktíð.
Athugasemdir