Rúmenska landsliðið hefur kvatt Þýskaland eftir að hafa fengið 3-0 skell gegn Hollandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins.
Þetta var hinsvegar besti árangur Rúmena á stórmóti í 24 ár og greinilegt að liðið og stuðningsmennirnir elskuðu tíma sinn í Þýskalandi.
Þetta var hinsvegar besti árangur Rúmena á stórmóti í 24 ár og greinilegt að liðið og stuðningsmennirnir elskuðu tíma sinn í Þýskalandi.
Á samfélagsmiðlum hafa sést myndir af klefanum sem Rúmenar skildu eftir sig þegar þeir kvöddu, allt hafði verið þrifið hátt og lágt og liðið fær mikið hrós fyrir þrifnaðinn.
Þá sýndi liðið herramennsku til fyrirmyndar með því að skilja eftir bréf til mótshaldara í Þýskalandi þar sem það þakkaði fyrir mótið og alla upplifunina í kringum það.
This is how Romania's locker room looked like when they left the Allianz Arena in Munich following their defeat against Netherlands. Class! #EURO2024 pic.twitter.com/hk83rvFhaP
— Emanuel Ro?u (@Emishor) July 3, 2024
Athugasemdir