
Það hefur gengið ansi illa hjá þýska landsliðinu undanfarið en liðið féll úr leik á HM í Katar eftir riðlakeppnina.
Þýskaland féll úr leik í 16-liða úrslitum á EM í fyrra og einnig féll liðið úr leik í riðlakeppni HM 2018.
Óvissa hefur verið um framtíð Hansi Flick þjálfara Þýskalands en nú hefur verið staðfest að hann verði áfram en EM 2024 fer einmitt fram í Þýskalandi.
„Ég og þjálfarateymið mitt erum bjartsýnir fyrir EM í heimalandinu. Við getum náð miklu betri árangri en við sýndum í Katar. Við klikkuðum á frábæru tækifæri þar, við munum læra af því," sagði Flick.
„Við höfum fulla trú á að Hansi Flick nái að fullkomna þessa áskorun með sínu teymi," sagði Bernd Neuendorf forseti þýska sambandsins.
Oliver Bierhoff hætti sem tæknilegur ráðgjafi landsliðsins eftir HM í Katar.