Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 15. desember 2022 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Endrick ætlar að vinna fleiri titla áður en hann fer til Real Madrid
Mynd: Getty Images

Hinn 16 ára gamli Endrick mun ganga til liðs við Real Madrid árið 2024 frá brasilíska liðinu Palmeiras en þetta var staðfest í dag.


Endrick hefur spilað sjö leiki fyrir aðallið Palmeiras og skorað þrjú mörk. Hann segist ætla gefa allt í þetta áður en hann heldur til Spánar.

„Ég vil þakka mínu félagi, Palmeiras fyrir að gefa mér allt mögulegt til að verða sá sem ég er í dag. Hjálpa mér að lifa drauminn og bera virðingu fyrir óskum mínum og fjölskyldu minnar," segir Endrick.

„Þar til ég fer til Real Madrid mun ég halda áfram að gera mitt inn á vellinum fyrir Palmeiras, skora fleiri mörk, vinna fleiri leiki, fleiri titla og veita stuðningsmönnunum meiri ánægju."


Athugasemdir
banner