Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 15. desember 2022 22:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Miedema meiddist alvarlega í tapi Arsenal
Mynd: Arsenal

Arsenal tapaði 1-0 gegn Lyon í Meistaradeildinni í kvöld og liðið varð fyrir enn frekara áfalli þegar markamaskínan Vivianne Miedema meiddist illa undir lok fyrri hálfleiks.


Sjúkraliðar hlúðu að henni í nokkrar mínútur og hún var að lokum borin af velli og búið var að vefja vel utan um fótinn hennar.

„Hún var mjög kvalin. Þetta lítur út fyrir að vera slæmt," sagði Rachel Corsie hjá Sky Sports.

Miedema er tiltölulega ný komin aftur út á völl eftir að hafa tekið sér smá pásu til að hlaða batteríin. Hún hafði skorað í fjórum leikjum í röð fyrir leik kvöldsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner