Jamal Musiala gat valið að spila fyrir annað hvort England eða Þýskaland.
Hann valdi Þýskaland en Joachim Löw, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur opinberað hvernig hann sannfærði Musiala.
Hann valdi Þýskaland en Joachim Löw, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur opinberað hvernig hann sannfærði Musiala.
„Hann ólst upp í Englandi, átti vini þar og þróaðist þar sem fótboltamaður. Þetta var í eina skiptið í starfi mínu þar sem ég lofaði leikmanni einhverju," sagði Löw.
„Þótt hann væri ekki byrjunarliðsmaður þá lofaði ég honum því að hann myndi fara á EM 2021 ef hann veldi okkur."
Musiala fór á EM 2021 með Þýskalandi og er í dag algjör lykilmaður fyrir liðið.
Athugasemdir