Rodri, leikmaður Man City, vann Gullboltann, Ballon d'Or, í síðasta mánuði en hann vann baráttuna gegn Vinicius Junior leikmanni Real Madrid.
Það var mikil reiði innan herbúða Real Madrid vegna þess en enginn frá félaginu mætti á athöfnina.
Rodri er á meiðslalistanum en hann verður á Etihad vellinum þegar Manchester City fær Tottenham í heimsókn um helgina.
Hann mun mæta með Gullboltann í hönd á vellinum og sýna stuðningsmönnum liðsins gripinn fyrir leik liðanna á laugardaginn. Manchester City býður stuðningsmönnum að merkja treyjurnar sínar með nafni Rodri frítt fyrir leikinn.
Athugasemdir