Pulisic, Amorim, Zirkzee, Osimhen, Raphinha, Murillo, Chiesa og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 19. nóvember 2024 16:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp íhugaði að fá Antony til að leysa Salah af hólmi
Antony.
Antony.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp íhugaði það að fá Antony til Liverpool árið 2022 áður en Mohamed Salah skrifaði undir nýjan samning við félagið.

Frá þessu segir breska dagblaðið The Times í dag.

Framtíð Salah var í óvissu snemma árs 2022 en hann skrifaði undir nýjan þriggja ára samning.

Times segir að Klopp og teymið í kringum hann hafi farið út í það að plana það ef Salah myndi fara, hver ætti að koma inn í staðinn.

Nafn Antony var þar ofarlega á lista en hann gekk í raðir Manchester United það sumarið. Síðan þá hefur hann verið algjörlega hörmulegur.
Athugasemdir
banner
banner