Christian Eriksen hefur ekki enn rætt neitt við Manchester United um nýjan samning.
Áfram er búist við því að hann yfirgefi félagið undir lok tímabilsins þegar samningur hans rennur út.
Áfram er búist við því að hann yfirgefi félagið undir lok tímabilsins þegar samningur hans rennur út.
Ruben Amorim er tekinn við Man Utd og verður álit hans tekið inn í myndina en það hefur þegar verið fjallað um í enskum fjölmiðlum að Eriksen sé ekki inn í myndinni hjá honum.
Hann er ekki í aðalhlutverki hjá United en hefur samt sem áður komið við sögu í 13 leikjum á tímabilinu. Það eru enn töfrar í fótum Eriksen þó hann sé orðinn 32 ára.
Eriksen hefur verið orðaður við endurkomu til Ajax í Hollandi síðustu vikur.
Athugasemdir