Ísland er með forystuna eftir hálftíma leik gegn Wales í úrslitaleik um sæti í umspili fyrir A deild Þjóðadeildarinnar.
Lestu um leikinn: Wales 4 - 1 Ísland
Andri Lucas Gujohnsen kom liðinu yfir snemma leiks en það er áfall fyrir liðið að Orri Steinn Óskarsson þurfti að fara af velli vegna meiðsla.
Orri virtist meiðast á kálfa og þurfti aðhlynningu. Mikael Egill Ellertsson kom inn á í hans stað.
Mikael Egill kom inn á sem varamaður í sigrinum gegn Svartfjallalandi og átti góða innkomu þar sem hann lagði upp fyrra mark liðsins einmitt á Orra Stein.
Athugasemdir