Sigrún Gunndís Harðardóttir er farin frá Aftureldingu en hún hefur verið hjá félaginu frá 2017.
Hún kom til liðsins frá Víkingi Ólafsvík þegar Afturelding var í 2. deild en hún lék með liðinu í Bestu deildinni árið 2022. Liðið hefur verið í Lengjudeildinni undanfarin tvö ár.
Hún spilaði rúmlega 160 leiki fyrir félagið og skorað 20 mörk. Þá var hún fyrirliðið liðsins.
„Afturelding þakkar Sigrúnu kærlega fyrir sitt ómetanlega framlag til félagsins og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni!" Segir í tilkynningu frá félaginu.
Athugasemdir