Bruno Guimaraes, miðjumaður Newcastle, er mjög ánægður hjá félaginu og hefur ekki áhuga á að ganga til liðs við Man City.
Hann hefur verið mikið orðaður við City og önnur félög sem gátu nýtt ákvæði í samningi hans í sumar og keypt hann fyrir 100 milljónir punda en ekkert varð úr því.
„Ég trúi því að ég sé átrúnaðargoð hjá félaginu og er vel virtur. Ég er fyrirliði Newcastle. Ef þú hefðir spurt mig fyrir þremur árum þá var það stærsti draumurinn að spila í úrvalsdeildinni," sagði Guimaraes.
Pep Guardiola hefur verið mjög opinn um dálæti hans á Guimaraes í viðtölum.
„Ég veit að Guardiola kann að meta mig sem fótboltamann, það er eðlilegt að frábærir stjórar dáist af manni. Við höfum rætt saman eftir viðtalið, ég hrósaði honum og hann hrósaði mér en það var ekkert meira," sagði Guimaraes.