Það er óhætt að segja að miðjumaðurinn Joao Palhinha hafi ekki átt sjö dagana sæla eftir að hann gekk í raðir Bayern München í sumar.
Þetta voru félagaskipti sem Palhinha var lengi búinn að bíða eftir en hann fór þá til Bayern frá Fulham.
Þetta voru félagaskipti sem Palhinha var lengi búinn að bíða eftir en hann fór þá til Bayern frá Fulham.
Palhinha hefur hins vegar verið í litlu hlutverki hjá Bayern og nú er útlit fyrir að árið hans sé búið.
Hann verður frá næstu vikurnar eftir að hann reif vöðva í fæti.
Hinn 29 ára gamli Palhinha mun missa af mikilvægum leikjum hjá Bayern en hann hefur aðeins byrjað þrjá deildarleiki til þessa.
Athugasemdir