Ísland hefur tekið forystuna gegn Wales í úrslitaleik um sæti í umspili fyrir A deildina í Þjóðadeildinni.
Lestu um leikinn: Wales 4 - 1 Ísland
Ísland hóf leikinn af krafti en Ísak Bergmann Jóhannesson komst í gott færi snemma leiks en Danny Ward sá við honum. Aðeins tveimur mínútum síðar var Ísland komið yfir.
Jóhann Berg átti fyrirgjöf og Orri Steinn skallaði á markið en Ward varði frá honum. Andri Lucas Guðjohnsen náði frákastinu og setti boltann milli fóta Ward.
Stórkostleg byrjun hjá Íslenska liðinu.
Athugasemdir