Það er komið að því. Lokaleikur Íslands í Þjóðadeildinni þetta árið fer fram í kvöld.
Það er mikið undir þegar Ísland heimsækir Wales í kvöld en liðin berjast um að komast í umspil um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar.
Ísland þarf að vinna til að komast í umspilið en Wales getur unnið riðilinn með sigri og farið beint upp í A-deild og sent Tyrkland í umspilið.
Þá mun Ísland spila í umspili um að halda sæti sínu í B deild. Ísland vann Svartfjallaland á dögunum.
þriðjudagur 19. nóvember
Landslið karla - Þjóðadeild
19:45 Wales-Ísland (Cardiff City Stadium)
Athugasemdir