Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
   mán 21. október 2024 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brotist inn hjá fótboltaparinu og miklu rænt
Douglas Luiz, miðjumaður Juventus.
Douglas Luiz, miðjumaður Juventus.
Mynd: Getty Images
Það var brotist inn á heimili fótboltaparsins Douglas Luiz og Alisha Lehmann um nýliðna helgi.

Það er Gazzetta dello Sport sem greinir frá þessu en þar segir að innbrotsþjófarnir hafi stolið ellefu úrum í eigu Luiz ásamt demantshálsmenum sem Lehmann átti.

Luiz spilaði í 1-0 sigri gegn Lazio á laugardagskvöldið og þegar hann kom heim var heimili hans í rúst. Lehmann var á hóteli þar sem hún var í útileik ásamt liðsfélögum sínum.

Talið er að þjófarnir hafi komist í burtu með ránsfeng að andvirði rúmlega 64 milljóna íslenskra króna.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brotist er inn hjá leikmanni Juventus Moise Kean, Kaio Jorge og Angel Di Maria hafa allir lent í þessu á síðustu árum.

Luiz og Lehmann gengu bæði í raðir Juventus í sumar eftir að hafa verið saman hjá Aston Villa á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner