Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
   sun 20. október 2024 18:22
Haraldur Örn Haraldsson
Byrjunarlið Fylkis og KR: Fallnir Fylkismenn gera þrjár breytingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir og KR mætast í kvöld í neðri hluta Bestu deild karla. Byrjunarliðin fyrir leikinn hafa verið birt og þetta eru breytingarnar sem þjálfararnir gera á sínum liðum.


Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  1 KR

Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis gerir þrjár breytingar á sínu liði. Inn koma Ragnar Bragi Sveinsson, Theodór Ingi Óskarsson og Halldór Jón Sigurður Þórðarson. Ásgeir Eyþórsson fær sér sæti á bekknum en Benedikt Daríus Garðarson og Þórður Gunnar Hafþórsson eru ekki í hóp.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR gerir eina breytingu á sínu liði. Finnur Tómas Pálmason kemur aftur inn í liðið en Aron Þórður Albertsson er í banni vegna uppsafnaðra spjalda.


Byrjunarlið Fylkir:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
5. Orri Sveinn Segatta
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Matthias Præst
14. Theodór Ingi Óskarsson
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Sigurbergur Áki Jörundsson
25. Þóroddur Víkingsson
27. Arnór Breki Ásþórsson
80. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Byrjunarlið KR:
12. Guy Smit (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
5. Birgir Steinn Styrmisson
6. Alex Þór Hauksson
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Benoný Breki Andrésson
11. Aron Sigurðarson
16. Theodór Elmar Bjarnason (f)
17. Luke Rae
23. Atli Sigurjónsson
25. Jón Arnar Sigurðsson
Athugasemdir
banner