Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
banner
   sun 20. október 2024 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Pavlovic viðbeinsbrotinn - Verður frá í mánuð
Aleksandar Pavlovic verður frá næstu vikur
Aleksandar Pavlovic verður frá næstu vikur
Mynd: Getty Images
Aleksandar Pavlovic, leikmaður Bayern München og þýska landsliðsins, verður ekkert með næsta mánuðinn eftir að hafa viðbeinsbrotnað í 4-0 sigri liðsins á Stuttgart í gær.

Pavlovic er tvítugur og unnið sér inn fast hlutverk á miðsvæði Bayern á tímabilinu.

Hann hefur haldið portúgalska miðjumanninum Joao Palhinha út úr liðinu, en Palhinha kom einmitt inn fyrir meiddan Pavlovic í gær.

Þýski landsliðsmaðurinn fór meiddur af velli á 8. mínútu og hefur nú komið í ljós að hann er með brotið viðbein.

Samkvæmt þýskum miðlum verður hann frá út nóvember og mun því missa af mikilvægum leikjum hjá Bayern og þýska landsliðinu.

Pavlovic hefur skorað eitt mark og gefið eina stoðsendingu í níu leikjum með Bayern á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner