Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
banner
   sun 20. október 2024 14:39
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Díaz, Núnez og Mac Allister á bekknum
Reece James byrjar eftir meiðslavandræði
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Liverpool og Chelsea eigast við í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Þar er ýmislegt sem kemur á óvart í báðum byrjunarliðum, þar sem Luis Díaz, Darwin Núnez og Alexi Mac Allister byrja allir á varamannabekknum eftir erfiða leiki í undankeppni HM í vikunni og langt ferðalag til og frá Suður-Ameríku.

Cody Gakpo, Diogo Jota og Curtis Jones eru því meðal byrjunarliðsmanna í dag, ásamt Dominik Szoboszlai.

Reece James, fyrirliði Chelsea, er óvænt í byrjunarliðinu eftir að hafa náð sér eftir mikil meiðslavandræði. Jadon Sancho og Noni Madueke byrja á köntunum og halda þeir Pedro Neto, Joao Felix og Christopher Nkunku á varamannabekknum.

Roméo Lavia byrjar á miðjunni þar sem Enzo Fernández sest á bekkinn eftir að hafa spilað með Argentínu í landsleikjahlénu.

Ekvadorski miðjumaðurinn Moisés Caicedo er eini Suður-Ameríkumaðurinn sem byrjar í dag þrátt fyrir að hafa spilað báða landsleiki Ekvador í hlénu.

Liverpool: Kelleher, Alexander-Arnold, Van Dijk, Konaté, Robertson, Szoboszlai, Jones, Gravenberch, Gakpo, Jota, Salah
Varamenn: Jaros, Gomez, Endo, Diaz, Nunez, Mac Allister, Tsimikas, Quansah, Morton

Chelsea: Sanchez, James, Gusto, Tosin, Colwill, Caicedo, Lavia, Madueke, Palmer, Sancho, Jackson
Varamenn: Bettinelli, Disasi, Badiashile, Veiga, Dewsbury-Hall, Fernandez, Neto, Felix, Nkunku
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 8 7 0 1 15 3 +12 21
2 Man City 8 6 2 0 19 9 +10 20
3 Arsenal 8 5 2 1 15 8 +7 17
4 Aston Villa 8 5 2 1 15 10 +5 17
5 Brighton 8 4 3 1 14 10 +4 15
6 Chelsea 8 4 2 2 17 10 +7 14
7 Tottenham 8 4 1 3 18 9 +9 13
8 Newcastle 8 3 3 2 8 8 0 12
9 Fulham 8 3 2 3 11 11 0 11
10 Bournemouth 8 3 2 3 10 10 0 11
11 Man Utd 8 3 2 3 7 9 -2 11
12 Nott. Forest 7 2 4 1 7 6 +1 10
13 Brentford 8 3 1 4 14 15 -1 10
14 Leicester 8 2 3 3 12 14 -2 9
15 West Ham 8 2 2 4 11 15 -4 8
16 Everton 8 2 2 4 9 15 -6 8
17 Ipswich Town 8 0 4 4 6 16 -10 4
18 Crystal Palace 7 0 3 4 5 10 -5 3
19 Southampton 8 0 1 7 6 18 -12 1
20 Wolves 8 0 1 7 10 23 -13 1
Athugasemdir
banner