Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
banner
   mán 21. október 2024 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Greenwood ætlar að sjá hvort hann eigi möguleika hjá Tuchel
Mason Greenwood.
Mason Greenwood.
Mynd: Getty Images
Mason Greenwood vill ræða við Thomas Tuchel, nýjan landsliðsþjálfara Englands, áður en hann tekur ákvörðun um landsliðsframtíð sína.

Greenwood á að baki einn landsleik fyrir England - gegn Íslandi 2020 - en hann hefur ekki komið til greina í langan tíma.

Í október 2022 var Greenwood, sem er 22 ára í dag, ákærður fyrir nauðgun og heimilisofbeldi en málið var látið niður falla í febrúar í fyrra. Sönnunargögn málsins voru myndir, myndbönd og hljóðupptaka sem kærasta hans birti á Instagram, en málið var þrátt fyrir það látið falla niður.

Hann hefur mest af verið frábær með Marseille í Frakklandi á tímabilinu en nú þegar enska sambandið hefur ráðið Thomas Tuchel sem nýjan landsliðsþjálfara, þá ætlar Greenwood að ræða við hann.

Greenwood á þann möguleika að spila fyrir Jamaíku en hann ætlar fyrst að taka stöðuna núna þegar nýr landsliðsþjálfari hefur verið ráðinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner