Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
banner
   sun 20. október 2024 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool og Dortmund keppast um serbneskt undrabarn
Mynd: Getty Images
Liverpool og Borussia Dortmund eru í kapphlaupi um serbneska undrabarnið Andrija Maksimovic en þetta segir þýski miðillinn BILD.

Maksimovic er 17 ára gamall miðjumaður sem er á mála hjá Rauðu stjörnunni í heimalandinu.

Hann er talinn einn mest spennandi ungi leikmaður Evrópu um þessar mundir en hann er þegar kominn með sæti í A-landsliði Serbíu og sá yngsti til að spila landsleik fyrir þjóðina.

BILD segir að Liverpool ætli að berjast við Borussia Dortmund um undirskrift hans.

Maksimovic hefur einnig verið orðaður við Englandsmeistara Manchester City, en hann er falur fyrir um það bil 12,4 milljónir punda.
Athugasemdir