Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
   mán 21. október 2024 20:48
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Dany Mota kom, sá og sigraði í Veróna
Mynd: EPA
Verona 0 - 3 Monza
0-1 Dany Mota ('9)
0-2 Dany Mota ('74)
0-3 Alessandro Bianco ('79)

Verona tók á móti Monza í eina leik kvöldsins í ítalska boltanum og var Dany Mota hetjan í leik sem var nokkuð jafn.

Mota skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Monza á níundu mínútu, eftir undirbúning frá Gianluca Caprari, og tvöfaldaði forystuna í síðari hálfleik.

Hann skoraði á 74. mínútu eftir stoðsendingu frá Milan Djuric og fimm mínútum síðar var Alessandro Bianco mættur til að innsigla sigurinn.

Lokatölur urðu 0-3 fyrir Monza og var þetta fyrsti sigur liðsins á nýju deildartímabili.

Monza er með 7 stig eftir 8 fyrstu umferðirnar, á meðan Verona er með 9 stig.
Athugasemdir
banner
banner