Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
   lau 19. október 2024 22:26
Brynjar Ingi Erluson
PSG aftur á sigurbraut - Barcola með mark og stoðsendingu
Bradley Barcola var flottur í kvöld
Bradley Barcola var flottur í kvöld
Mynd: EPA
Paris Saint-Germain er komið aftur á sigurbraut í frönsku deildinni en liðið fagnaði 4-2 sigri á Strasbourg í París í kvöld.

Franski landsliðsmaðurinn Bradley Barcola hefur tekið á sig stærra hlutverk eftir að Kylian Mbappe yfirgaf félagið, en hann skoraði og lagði upp í kvöld.

Barcola er markahæsti leikmaður deildarinnar með 7 mörk, tveimur meira en næsti maður.

Marco Asensio, Lee Kang-In og Senny Mayulu komust einnig á blað hjá PSG sem er á toppnum með 20 stig eftir átta leiki.
Athugasemdir
banner
banner