Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
   sun 20. október 2024 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Þungavigtin 3 ára og býður í fótbolta pílu quiz veislu
Mynd: Þungavigtin
Þungavigtin og Oche Reykjavik ætla að fagna saman þriggja ára afmæli Þungavigtarinnar miðvikudaginn 23. október kl 17:00 með fótbolta pílu quizi.

Tveir keppendur eru saman í liði og þátttakendur fá ískaldan Víking lite í boði hússins.

Pubquiz þar sem svarað er spurningunum með því að kasta pílum á svæðið með réttu svari. Allar spurningarnar eru fótbolta tengdar.

Verðlaun verða veitt fyrir efstu 3 sætin. "Þetta er nýtt kerfi sem Oche hefur verið að þróa og nú verður hægt að mæta og fara í spurningaleik í gegnum píluna segir Rikki G og verðum við fyrstir til að prófa"

Þungavigtin er hlaðvarpsþáttur fyrst og fremst um knattspyrnu og öllu henni tengdri. Hvort sem er innanlands eða utan. Liðsmenn þáttarins þarf vart að kynna fyrir þjóðinni. Skútunni stýrir Rikki G íþróttafréttamaður ásamt Mikael Nikulássyni og Kristjáni Óla Sigurðsyni betur þekktir sem Mike og Höfðinginn.

Linkur á skráninguna í pílumótið
Athugasemdir
banner