Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
   sun 20. október 2024 16:10
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Isidor endurheimti toppsætið fyrir Sunderland
Wilson Isidor skoraði fyrir Sunderland.
Wilson Isidor skoraði fyrir Sunderland.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Hull City 0 - 1 Sunderland
0-1 Wilson Isidor ('63)

Hull City tók á móti Sunderland í eina leik dagsins í ensku Championship deildinni og úr varð hörkuslagur.

Sunderland var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en átti í erfiðleikum með að skapa sér færi svo staðan var markalaus eftir bragðdaufan hálfleik.

Heimamenn í liði Hull voru sterkari aðilinn í síðari hálfleik en áfram var lítið um færi í leiknum.

Wilson Isidor skoraði eina markið á 63. mínútu eftir frábært einstaklingsframtak í kjölfar hornspyrnu Hull. Isidor fékk boltann á eigin vallarhelmingi og spretti upp völlinn með varnarmann í sér áður en hann kláraði snyrtilega framhjá markverðinum.

Lokatölur urðu 0-1 og fer Sunderland á topp deildarinnar með þessum sigri, þar sem liðið er komið með 22 stig eftir 10 umferðir - einu stigi meira heldur en Burnley sem situr í öðru sæti.

Hull City er um miðja deild með 12 stig.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Sunderland 10 7 1 2 19 8 +11 22
2 Burnley 10 6 3 1 16 4 +12 21
3 Leeds 10 5 4 1 17 7 +10 19
4 Sheffield Utd 10 6 3 1 12 5 +7 19
5 West Brom 10 5 3 2 13 7 +6 18
6 Blackburn 10 5 3 2 16 11 +5 18
7 Norwich 10 4 4 2 17 11 +6 16
8 Watford 10 5 1 4 14 17 -3 16
9 Middlesbrough 10 4 2 4 10 9 +1 14
10 Bristol City 10 3 5 2 12 14 -2 14
11 Oxford United 10 3 4 3 14 12 +2 13
12 Derby County 10 4 1 5 13 13 0 13
13 Swansea 10 3 3 4 8 7 +1 12
14 Hull City 10 3 3 4 12 14 -2 12
15 Preston NE 10 3 3 4 8 12 -4 12
16 Stoke City 10 3 2 5 11 13 -2 11
17 Luton 10 3 2 5 11 15 -4 11
18 Sheff Wed 10 3 2 5 11 17 -6 11
19 Plymouth 10 3 2 5 10 18 -8 11
20 Millwall 10 2 4 4 13 12 +1 10
21 Coventry 10 2 2 6 10 14 -4 8
22 Cardiff City 10 2 2 6 9 18 -9 8
23 Portsmouth 10 1 5 4 11 21 -10 8
24 QPR 10 1 4 5 10 18 -8 7
Athugasemdir