Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
   sun 20. október 2024 11:20
Ívan Guðjón Baldursson
Beckham um Messi: Mætti þremur tímum fyrr á fyrstu æfinguna
Mynd: EPA
David Beckham er einn af eigendum bandaríska fótboltafélagsins Inter Miami, sem er með argentínsku goðsögnina Lionel Messi innanborðs.

Messi hefur verið stórkostlegur á dvöl sinni hjá Inter og skoraði hann til að mynda þrennu í sigri liðsins í nótt. Beckham hefur gríðarlega miklar mætur á Messi, sem er enn í dag einn af bestu fótboltamönnum heims þrátt fyrir að vera orðinn 37 ára gamall.

„Messi er stórkostlegur leikmaður og einstaklingur. Ég man eftir fyrsta deginum þegar hann mætti á æfingu hjá okkur, þá var hann kominn á æfingasvæðið klukkan 06:50 en æfingin byrjaði ekki fyrr en klukkan 10," sagði Beckham.

„Restin af hópnum mætti ekki fyrr en þremur tímum síðar, en Messi var að hita upp á æfingasvæðinu. Hann var að leika sér og gera alla þessa hluti sem maður býst við af ungum leikmanni sem er hungraður í að bæta sig og ná árangri."
Athugasemdir