Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
   lau 19. október 2024 19:55
Brynjar Ingi Erluson
Diljá skoraði í stórsigri Leuven
Diljá er komin með þrjú deildarmörk
Diljá er komin með þrjú deildarmörk
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Diljá Ýr Zomers heldur áfram að skora í belgísku úrvalsdeildinni en hún gerði fjórða mark Leuven í 5-0 stórsigri á Gent í kvöld.

Íslenska landsliðskonan var í byrjunarliði Leuven sem fór með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn.

Hannah Eurlings skoraði eitt og lagði upp tvö áður en Leuven fékk vítaspyrnu snemma í síðari hálfleiknum.

Diljá fór á punktinn og setti boltann af öryggi efst í vinstra hornið. Þetta var þriðja deildarmark hennar á tímabilinu.

Leuven er á toppnum í deildinni með 19 stig eftir átta leiki.
Athugasemdir
banner
banner