Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
banner
   mán 21. október 2024 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ein stærsta ástæðan fyrir því að Salah skrifi undir nýjan samning
Mohamed Salah.
Mohamed Salah.
Mynd: EPA
Jamie Carragher er þess fullviss um að Mohamed Salah muni skrifa undir nýjan samning við Liverpool og hefur hann bent á eina stóra ástæðu fyrir því.

Samningur Salah rennur út næsta sumar en honum er frjálst að ræða við félög utan Englands frá og með janúar.

Hinn 32 ára gamli Salah skoraði sitt 162. mark í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Liverpool lagði Chelsea að velli, en Carragher telur að Egyptinn sé hungraður í að færa sig upp þann lista og bæta fleiri met. Hann er aðeins 13 mörkum á eftir Thierry Henry sem er í sjöunda sætinu yfir þá markahæstu í sögu deildarinnar.

„Hann mun vera með augun á Thierry Henry og Frank Lampard í enda tímabilsins," sagði Carragher eftir leikinn í gær.

„Ég held að svona tölfræði sé eina stærsta ástæðan fyrir því að hann muni skrifa undir nýjan samning við Liverpool. Auðvitað er talað um fjármuni og lengd samnings en ég held að þetta sé líka eitthvað sem kveiki í Mo Salah."
Athugasemdir
banner
banner