Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
banner
   mán 21. október 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verðandi leikmaður Chelsea bætti met Neymar
Estevao.
Estevao.
Mynd: Getty Images
Hinn 17 ára gamli Estevao Willian hefur farið með himinskautum með Palmeiras í Brasilíu en eftir ár, þegar hann verður 18 ára gamall, mun hann ganga í raðir Chelsea.

Chelsea virðist hafa krækt í leikmann sem gæti orðið einn sá besti í heiminum en hann hefur komið að 17 mörkum fyrir Palmeiras á þessu ári.

Það hefur ekki neinn leikmaður á U17 aldri komið að fleiri mörkum á 21. öldinni.

Estevao bætti met sem Neymar átti, en hann kom að 16 mörkum þegar hann var á mála hjá Santos árið 2009.

Estevao er kallaður 'Messinho' en stuðningsmenn Chelsea eru skiljanlega afskaplega spenntir fyrir honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner