Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
   sun 20. október 2024 16:01
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Vildu sjá Tosin fjúka af velli
Tosin gekk til liðs við Chelsea á frjálsri sölu í sumar eftir að hafa leikið fyrir Fulham undanfarin ár.
Tosin gekk til liðs við Chelsea á frjálsri sölu í sumar eftir að hafa leikið fyrir Fulham undanfarin ár.
Mynd: Getty Images
Liverpool er að spila stórleik gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og er staðan 1-0 eftir tæplega 30 mínútna leik, þar sem Mohamed Salah skoraði úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot Levi Colwill innan vítateigs.

Heimamenn í liði Liverpool voru ánægðir með vítaspyrnudóminn en þeir voru alls ekki sáttir þegar Tosin Adarabioyo, miðvörður Chelsea, braut af sér sem aftasti varnarmaður á sjöundu mínútu leiksins og slapp með gult spjald.

Heimamenn vildu sjá Tosin fá beint rautt spjald fyrir brotið, en við endursýningu virðist hann ekki hafa rænt upplögðu marktækifæri af Diogo Jota.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan, en William Saliba leikmaður Arsenal fékk beint rautt spjald í gær fyrir svipað brot gegn Bournemouth.

Leikmaður Bournemouth virtist þó vera með greiða leið að marki Arsenal í gær, en boltinn var á leið út á kant í slagnum í dag auk þess sem annar varnarmaður Chelsea var með í kapphlaupinu.

Adarabioyo foul on Jota (yellow card)
byu/Messmers insoccer

Athugasemdir