Newcastle ætlar að bjóða 80 milljónir fyrir Guéhi - Palmer ekki til sölu - Wirtz eftirsóttur - Man Utd vill ráða Amorim - Trent og Frimpong á...
   lau 19. október 2024 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Davíð tapaði fyrir toppliðinu - Jafntefli í fyrsta byrjunarliðsleik Hólmberts
Hólmbert Aron byrjaði sinn fyrsta leik í dag
Hólmbert Aron byrjaði sinn fyrsta leik í dag
Mynd: SCP
Davíð Kristján Ólafsson og félagar í Cracovia töpuðu fyrir Lech Poznan, 2-0, í pólsku úrvalsdeildinni í dag.

Blikinn er fastamaður í liði Cracovia og hefur verið að spila vængbakvörðinn þar.

Hann var í byrjunarliðinu í dag en honum var skipt af velli þegar hálftími var eftir.

Lech Poznan er á toppnum í pólsku deildinni með 28 stig en Cracovia í 4. sæti með 23 stig.

Hólmbert Aron Friðjónsson byrjaði þá sinn fyrsta leik með Preussen Münster er liðið gerði 1-1 jafntefli við Elversberg í þýsku B-deildinni.

Hann spilaði 53 mínútur í dag en Preussen Münster er í næst neðsta sæti með 6 stig.

Andri Lucas Guðjohnsen átti þá ágætis leik er Gent gerði markalaust jafntefli við Union SG í belgísku deildinni.

Framherjinn skapaði nokkur góð færi fyrir liðsfélaga sína á þeim 73 mínútum sem hann spilaði. Gent er í 3. sæti deildarinnar með 18 stig.
Athugasemdir
banner
banner