Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
   mán 21. október 2024 09:40
Elvar Geir Magnússon
Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies
Powerade
Samuel Chukwueze.
Samuel Chukwueze.
Mynd: EPA
Alphonso Davies.
Alphonso Davies.
Mynd: EPA
Þá er komið að mánudagsslúðrinu. Sumir vilja meina að það sé besta slúðrið. Everton vill fá vængmann AC Milan og ýmislegt fleira kemur við sögu.

Everton ætlar að kaupa Samuel Chukwueze (25) nígerískan kantmann AC Milan í í janúarglugganum. (Football Insider)

Manchester United ætlar að sannfæra Alphonso Davies (23) bakvörð Bayern München um að velja félagið fram yfir Real Madrid þegar samningur kanadíska landsliðsmannsins rennur út í lok tímabilsins. (Fichajes)

Arsenal gæti landað serbneska sóknarmanninum Dusan Vlahovic (24) á góðu verði vegna þess að viðræður hans við Juventus um nýjan samning ganga ekki vel. (Caught Offside

Thomas Tuchel, verðandi landsliðsþjálfari Englands, verður ekki með Zsolt Low í teymi sínu en þeir hafa unnið saman í mörg ár. (Sun)

Aston Villa er komið í kapphlaupið um að fá kamerúnska framherjann Bryan Mbeumo (25) frá Brentford. (TBR Football)

Manchester United gæti lánað hollenska framherjann Joshua Zirkzee (23) til Juventus ef félagið fær slóvenska framherjann Benjamin Sesko (21) frá RB Leipzig næsta sumar. (Tuttomercato)

Manchester City, Liverpool og Tottenham hafa augastað á spænska kantmanninum Raul Moro (21) hjá Real Valladolid (Fichajes)

Arsenal, Tottenham, Crystal Palace og Nottingham Forest hafa áhuga á Jamie Bynoe-Gittens (20). enska kantmanninum hjá Borussia Dortmund. Þýska félagið vill fá tilboð upp á meira en 50 milljónir punda fyrir leikmanninn áður en það íhugar að selja. (Caught Offside)

Arsenal, Juventus, AC Milan og Napoli eru á meðal þeirra félaga sem fylgjast með Nico Paz (20), miðjumanni Como og argentínska landsliðinu. (Nicolo Schira á X)

Xavi, fyrrverandi stjóri Barcelona, hefur verið orðaður við að taka við sem landsliðsþjálfara Katar. (Al Raya)
Athugasemdir
banner