Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
banner
   sun 20. október 2024 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bremen skoraði fjögur á útivelli - Þægilegt hjá Union Berlín
Bremen hafði betur gegn Wolfsburg
Bremen hafði betur gegn Wolfsburg
Mynd: Getty Images
Union Berlín er í fimmta sæti
Union Berlín er í fimmta sæti
Mynd: EPA
Werder Bremen og Union Berlín unnu bæði í 7. umferð þýsku deildarinnar í dag.

Bremen sótti góðan 4-2 sigur til Wolfsburg. Tomas Tiago kom heimamönnum í forystu á 19. mínútu leiksins.

Gestirnir byrjuðu leikinn illa en náðu að svara undir lok fyrri hálfleiksins er Mitchell Weiser gerði fyrsta mark sitt á tímabilinu eftir fyrirgjöf Marvin Ducksch.

Bremen kom með kraft inn í síðari. Felix Agu kom liðinu í forystu snemma í síðari hálfleiknum er hann nýtti sér mistök Kamil Grabara, markvarðar Wolfsburg.

Wolfsburg átti ágætis kafla eftir markið en tókst ekki að jafna. Bremen tók aftur við sér og bætti við þriðja markinu en i þetta sinn kom Weiser boltanum á Ducksch, sem skoraði.

Mínútu síðar var Patrick Wimmer, leikmaður Wolfsburg, rekinn af velli fyrir ljóta tæklingu á Marco Grull. Fjórum mínútum síðar skoraði Grull fjórða mark Bremen.

Joakim Mæhle tókst að minnka muninn á 79. mínútu en lengra komust tíu heimamenn ekki. Lokatölur 4-2 fyrir Bremen sem fer upp í 8. sæti deildarinnar með 11 stig en Wolfsburg í 13. sæti með 7 stig.

Nýliðar Holsten Kiel töpuðu þá fyrir Union Berlín, 2-0, á heimavelli.

Aljoscha Kemlein skoraði á 18. mínútu og þá gerði Tom Rothe endanlega út um leikinn á lokamínútum leiksins.

Holsten situr í næst neðsta sæti með 2 stig og enn án sigurs en Union í 5. sæti með 14 stig.

Wolfsburg 2 - 4 Werder
1-0 Tomas Tiago ('19 )
1-1 Mitchell Weiser ('45 )
1-2 Felix Agu ('51 )
1-3 Marvin Ducksch ('67 )
1-4 Marco Grull ('72 )
2-4 Joakim Maehle ('79 )
Rautt spjald: Patrick Wimmer, Wolfsburg ('68)

Holstein Kiel 0 - 2 Union Berlin
0-1 Aljoscha Kemlein ('18 )
0-2 Tom Rothe ('89 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 7 5 2 0 24 7 +17 17
2 RB Leipzig 7 5 2 0 11 2 +9 17
3 Freiburg 7 5 0 2 12 8 +4 15
4 Leverkusen 7 4 2 1 18 13 +5 14
5 Union Berlin 7 4 2 1 8 4 +4 14
6 Eintracht Frankfurt 7 4 1 2 15 11 +4 13
7 Dortmund 7 4 1 2 14 12 +2 13
8 Werder 7 3 2 2 12 14 -2 11
9 Heidenheim 7 3 0 4 12 11 +1 9
10 Stuttgart 7 2 3 2 15 15 0 9
11 Gladbach 7 3 0 4 10 12 -2 9
12 Mainz 7 2 2 3 11 12 -1 8
13 Wolfsburg 7 2 1 4 15 16 -1 7
14 Hoffenheim 7 2 1 4 13 17 -4 7
15 Augsburg 7 2 1 4 10 18 -8 7
16 St. Pauli 7 1 1 5 5 11 -6 4
17 Holstein Kiel 7 0 2 5 9 21 -12 2
18 Bochum 7 0 1 6 7 17 -10 1
Athugasemdir
banner
banner
banner