Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
Brynjar Björn: Ég hætti hérna eftir tímabilið
Óskar Hrafn: Fótbolti er núvitund
Þorsteinn Aron: Þriðja sigurmarkið á þessu tímabili
Rúnar ósáttur við ákvörðun HK: Við reynum að vera heiðarlegir
Ómar: Ekki okkar að kasta honum til þeirra á svona augnabliki
Mathias Præst: Ein mynd skiptir ekki öllu máli
Jökull: Nánast bara eitt lið á vellinum
Dóri Árna: Hvað er í gangi hérna?
Höskuldur um komandi úrslitaleik: Ánægður að við þurfum að sækja sigur
Elfar Árni: Tækifærin verið of fá fyrir minn smekk
Davíð Smári: Létum þá líta út eins og Barcelona árið 2009
Skilur ekki á hvað var dæmt - „Þetta átti að vera mark“
Tufa: Alvöru sigurvegarar standa upp þegar þeir eru kýldir í magann
Segir að Viðar hafi verið í banni - Einungis fengið eitt spjald
Djuric: Ótrúlegasta sem ég hef spilað í
Heimir: Ekkert sérstakt að eiga met sem verður aldrei slegið í því að vera lélegur
Arnar orðlaus: Eiginlega ekki hægt að segja neitt
Sindri Kristinn: Hann setur hann yfirleitt í vinkilinn þannig ég ætlaði að láta mig flakka þar
Jón Þór brjálaður: Er verið að gera grín að okkur?
Gylfi Þór: Það gæti orðið minn síðasti leikur
banner
   sun 20. október 2024 22:12
Haraldur Örn Haraldsson
Mathias Præst: Ein mynd skiptir ekki öllu máli
Mynd: KR

„Við fengum á okkur rautt spjald snemma í leiknum og eftir það föllum við til baka og beitum skyndisóknum. Þannig það var gott að við skyldum aðeins tapa með einu marki og áttum færi í lokin til þess að ná mögulega jafnteflinu. En þetta var erfitt í dag eftir að hafa fengið rautt spjald snemma í leiknum." Sagði Mathias Præst Nielsen leikmaður Fylkis eftir að liðið hans tapaði 1-0 fyrir KR í kvöld.


Lestu um leikinn: Fylkir 0 -  1 KR

Þetta er fyrsta tímabil Mathias á Íslandi og það endar með því að hann fellur með Fylki.

„Þetta hefur verið erfitt tímabil. Við áttum mjög erfiða byrjun á tímabilinu og ég held að það hafi verið þessi byrjun sem drap sjáfstraust liðsins. Því að í byrjun fannst mér við vera að spila vel, en við náðum ekki í úrslit. Það hefur svo bara verið erfitt þegar úrslitin falla ekki með manni."

KR mótherji Fylkis í dag, er búið að ganga frá samningsviðræðum við Mathias. Hann mun ganga í raðir KR eftir tímabil og því hefur líkast til verið nokkuð sérkennilegt að spila á móti þeim í dag.

„Þetta var svolítið skrítið en þetta var bara einn annar leikur. Ég hugsaði ekkert of mikið út í þetta, mig langaði bara að spila vel. Mér fannst ég spila illa í leikjunum tveim gegn KR fyrr á tímabilinu, þannig mig langaði að standa mig í dag. Það tókst ekki, en þetta var bara einn annar leikur."

Það hefur lengi verið vitað að Mathias muni ganga í raðir KR eftir tímabil þar sem mynd af honum í KR búningnum var gefið út á miðju tímabili þegar hann komst að samkomulagi við félagið.

„Í fullri hreinskilni þá hugsaði ég ekki of mikið um þetta. Ég vissi ekki að myndin myndi vera birt strax, en svo sá ég fréttirnar að þetta hafi verið birt. Þá hugsaði ég bara með mér að ein mynd skiptir ekki öllu máli. Þegar ég hugsa til baka þá hefði ég kannski betur sleppt þessu en ég hef haft fulla einbeitingu á Fylki allt tímabilið. Þannig þetta er bara eins og það er."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Athugasemdir
banner