Man City og Liverpool hafa áhuga á Buonanotte - Bournemouth ætlar ekki að gefa neinn afslátt á Kerkez - Liverpool vill Schlotterbeck - Semenyo til...
   sun 20. október 2024 17:24
Brynjar Ingi Erluson
Vilja 50 milljónir punda fyrir Semenyo
Mynd: Getty Images
Antoine Semenyo, sóknarmaður Bournemouth á Englandi, er eftirsóttur en félagið ætlast til þess að fá að minnsta kosti 50 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Semenyo er 24 ára gamall og uppalinn í Bristol City en hann gekk í raðir Bournemouth á síðasta ári.

Á þessu tímabili hefur hann skorað þrjú deildarmörk og gefið eina stoðsendingu í sjö leikjum með Bournemouth.

Football Insider segir mörg félög á eftir Semenyo, en Arsenal, Newcastle United og Tottenham eru öll sögð íhuga að leggja fram tilboð í kappann.

Bournemouth mun ekki sætta sig við minna en 50 milljónir punda fyrir Semenyo.

Ekki er talið ómögulegt að félagið leyfi honum að fara í janúarglugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner