Everton ætlar að fá Chukwueze - Man Utd reynir að sannfæra Davies - Arsenal gæti fengið Vlahovic á góðu verði
   mán 21. október 2024 18:05
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Forest og Palace: Wharton og Sarr bekkjaðir
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Nottingham Forest tekur á móti Crystal Palace í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Liðin eigast við í lokaleik 8. umferðar deildartímabilsins og eru sjö stig sem skilja liðin að á stöðutöflunni.

Forest hefur farið þokkalega vel af stað á nýju tímabili og er með 10 stig eftir 7 umferðir, á meðan Palace er aðeins með þrjú stig og á enn eftir að sigra leik.

Nuno Espirito Santo neyðist til að gera tvær breytingar á byrjunarliði Forest sem gerði 1-1 jafntefli við Chelsea í síðustu umferð. Nicolas Dominguez og Anthony Elanga koma inn í liðið fyrir James Ward-Prowse og Morgan Gibbs-White sem eru í leikbanni.

Oliver Glasner gerir einnig tvær breytingar á byrjunarliðinu sem tapaði naumlega gegn Liverpool fyrir landsleikjahlé. Will Hughes og Daichi Kamada koma inn í byrjunarliðið fyrir Adam Wharton og Ismaila Sarr sem setjast á bekkinn.

Nottingham Forest: Sels; Aina, Milenkovic, Murillo, Moreno; Yates, Dominguez; Elanga, Anderson, Hudson-Odoi; Wood.
Varamenn: Miguel, Morato, Williams, Awoniyi, Omobamidele, Toffolo, Jota, Sosa, Boly

Crystal Palace: Henderson, Munoz, Lacroix, Guehi, Chalobah, Mitchell, Hughes, Lerma, Kamada, Nketiah, Eze.
Varamenn: Turner, Ward, Sarr, Mateta, Schlupp, Clyne, Wharton, Kporha, Agbinone.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 8 7 0 1 15 3 +12 21
2 Man City 8 6 2 0 19 9 +10 20
3 Arsenal 8 5 2 1 15 8 +7 17
4 Aston Villa 8 5 2 1 15 10 +5 17
5 Brighton 8 4 3 1 14 10 +4 15
6 Chelsea 8 4 2 2 17 10 +7 14
7 Tottenham 8 4 1 3 18 9 +9 13
8 Nott. Forest 8 3 4 1 8 6 +2 13
9 Newcastle 8 3 3 2 8 8 0 12
10 Fulham 8 3 2 3 11 11 0 11
11 Bournemouth 8 3 2 3 10 10 0 11
12 Man Utd 8 3 2 3 7 9 -2 11
13 Brentford 8 3 1 4 14 15 -1 10
14 Leicester 8 2 3 3 12 14 -2 9
15 West Ham 8 2 2 4 11 15 -4 8
16 Everton 8 2 2 4 9 15 -6 8
17 Ipswich Town 8 0 4 4 6 16 -10 4
18 Crystal Palace 8 0 3 5 5 11 -6 3
19 Southampton 8 0 1 7 6 18 -12 1
20 Wolves 8 0 1 7 10 23 -13 1
Athugasemdir
banner
banner