Man Utd vill Ait-Nouri og hefur líka áhuga á Nkunku - Fulham og Leicester vilja fá Ferguson lánaðan - Dyche með fullan stuðning
   þri 22. október 2024 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spila í fjórum löndum en sameinuðu krafta sína í vinsælu lagi
Eyþór og Kristall Máni.
Eyþór og Kristall Máni.
Mynd: HubbaBubba
Fyrir helgi gaf tvíeykið HúbbaBúbba út plötuna Stórasta plata í heimi. Fótboltamennirnir Eyþór Aron Wöhler og Kristall Máni Ingason eru HúbbaBúbba. Þeir fengu vini sína, þá Birni Snæ Ingason og Loga Tómasson, með í lag á plötunni.

Lagið heitir Betra partý og má nálgast hér neðst. Þegar þetta er skrifað er lagið 7. vinsælasta lagið á Top 50 - Iceland listanum á Spotify. Lagið Aldrei of seint á sömu plötu er í efsta sæti listans.

Í laginu vísar Birnir í að hann var besti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra og kemur inn á fatahönnun.

Logi, eða Luigi, er með í tveimur öðrum lögum á þessari sjö laga plötu. Logi er leikmaður Strömsgodset í Noregi. Birnir, eða Biddi, er leikmaður Halmstad í Svíþjóð. Kristall er svo leikmaður SönderjyskE í Danmörku og Eyþór er leikmaður KR.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner