Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
mánudagur 22. apríl
Besta-deild kvenna
sunnudagur 21. apríl
Besta-deild karla
Besta-deild kvenna
laugardagur 20. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
föstudagur 19. apríl
Super League - Women
Brighton W 1 - 2 Everton W
Division 1 - Women
Paris W 0 - 1 Saint-Etienne W
Bundesligan
Eintracht Frankfurt 3 - 1 Augsburg
Bundesliga - Women
RB Leipzig W 1 - 0 Bayer W
Serie A
Cagliari 2 - 2 Juventus
Genoa 0 - 1 Lazio
Toppserien - Women
Lyn W 1 - 0 Lillestrom W
Úrvalsdeildin
FK Krasnodar 2 - 0 Fakel
La Liga
Athletic 1 - 1 Granada CF
Damallsvenskan - Women
Norrkoping W 2 - 2 Djurgarden W
Elitettan - Women
Umea W 1 - 0 Sunnana W
mið 26.apr 2017 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 2. sæti: Valur

Valsmenn enda í öðru sæti Pepsi-deildarinnar í sumar ef spá Fótbolta.net rætist. Fréttaritarar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig.

Sigurður Egill er öflugt vopn í sóknarleiknum.
Sigurður Egill er öflugt vopn í sóknarleiknum.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Bjarni Ólafur er reynslumesti leikmaður Vals.
Bjarni Ólafur er reynslumesti leikmaður Vals.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Anton Ari Einarsson.
Markvörðurinn Anton Ari Einarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Sigurður Ómarsson.
Orri Sigurður Ómarsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Karl og Kristinn Ingi.
Einar Karl og Kristinn Ingi.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Sóknarmaðurinn ungi Sveinn Aron Guðjohnsen.
Sóknarmaðurinn ungi Sveinn Aron Guðjohnsen.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðhyltingurinn Sindri Björns.
Breiðhyltingurinn Sindri Björns.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Adolphsson.
Andri Adolphsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. FH
2. Valur 81 stig
3. KR 79 stig
4. Stjarnan 76 stig
5. Breiðablik 66 stig
6. Fjölnir 52 stig
7. KA 44 stig
8. Víkingur R. 42 stig
9. ÍBV 35 stig
10. ÍA 24 stig
11. Grindavík 19 stig
12. Víkingur Ólafsvík 10 stig

Um liðið: Valsmenn hafa orðið bikarmeistarar tvö síðustu ár en spennandi verður að sjá hvort liðið sé tilbúið að berjast um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn í ár. Liðið hefur verið hörkuöflugt á undirbúningstímabilinu, landað Reykjavíkurmeistaratitlinum og vann Meistaraleikinn gegn FH á mánudaginn. Valsmenn koma á flugi inn í mótið og gætu gert góða hluti. Liðið hefur leitað til Danmerkur og er með þrjá Dani í leikmannahópnum.

Þjálfari – Ólafur Jóhannesson: Valsmenn spila skemmtilegan fótbolta eftir leikstíl Óla. Stemningin í liðinu hefur endurspeglast í árangri í bikarnum. Ólafur og aðstoðarmaður hans, Sigurbjörn Hreiðarsson, njóta sín í botn og hafa gert flotta hluti með liðið. Ólafur er refur í bransanum og ólíkindatól í viðtölum þar sem hann á það til að hefja sálfræðistríð. Eftir að hafa gert FH að Íslandsmeisturum dreymir Ólafi um að gera það sama með Valsliðinu.

Eru bikarmeistararnir tilbúnir til að berjast um Íslandsmeistaratitilinn?

Styrkleikar: Öflugt byrjunarlið sem skapar góða heild. Breiddin á miðjunni er gríðarlega mikil og þar vantar ekki samkeppnina. Valsmenn hafa verið góðir í vetur og koma á flugi inn í tímabilið. Það virðist trú í hópnum um að liðið hafi það sem þarf til að fara alla leið. Þeir gætu grætt vel á heimavellinum í sumar eins og í fyrra. Þeir æfa á vellnum allt árið um kring og ekkert lið fékk fleiri stig á heimavelli í fyrra en Valur. Valsmenn hafa reynt þjálfarateymi sem þekkir leiðina að velgengni. Sigurður Egill Lárusson er öflugt vopn í sóknarleiknum og verður gulls ígildi ef hann sýnir stöðuga frammistöðu í sumar.

Veikleikar: Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður ársins 2016, er farinn út í atvinnumennsku og það er hægara sagt en gert að fylla hans skarð enda bjó hann til urmul marka í fyrra. Valur hefur leikið vel án hans í vetur en spurning er hvort hans verði saknað þegar í alvöruna er komið. Valsmenn hafa ekki áreiðanlegan markaskorara þó kostirnir í sóknarleiknum séu margir. Breiddin varnarlega er lítil og þar þurfa þjálfararnir að krossleggja fingur og vona að ekki komi til skakkafalla.

Lykilmenn: Orri Sigurður Ómarsson og Haukur Páll Sigurðsson. Orri hefur sannað sig sem einn besti miðvörður deildarinnar og hefur verið að banka fast á dyr atvinnumennsku. Ekki ólíklegt að hann fari út eftir þetta sumar. Haukur Páll er fyrirliðinn, baráttuhundur á miðjunni sem er öflugur í föstum leikatriðum þar sem hann er alltaf líklegur til að skora. Gerði sigurmarkið í Meistaraleiknum á mánudag.

Gaman að fylgjast með: Anton Ari Einarsson markvörður. Mosfellingurinn ungi sló Ingvar Kale út úr rammanum í fyrra. Einhverjir efasemdarraddir hafa verið um hann en eina leiðin til að svara því er á sjálfum vellinum. Virðist vera að taka hröðum framförum og var frábær í umræddum sigurleik gegn FH.

Spurningamerkið: Fær Valur betri byrjun og nær liðið meiri stöðugleika? Liðið hóf deildina í fyrra á tapi heima gegn Fjölni og svo tapi gegn Víkingi í Ólafsvík. Dýrkeypt stig í súginn strax í upphafi. Liðinu gekk illa að viðhalda stöðugleika í fyrra og bras var í að tengja saman sigurleiki.

Völlurinn: Valsvöllurinn er einn glæsilegasti fótboltavöllur landsins. Búið er að setja hágæða gervigras á völlinn og flóðljós eru komin upp. Valsmönnum líður vel á vellinum eins og stigasöfnunin í fyrra sýnir glögglega.

„Við verðum að byrja grimmt, betur en við höfum gert undanfarin ár"

Formaðurinn segir – Edvard Börkur Edvardsson
„Ég er nokkuð bjartsýnn. Við höfum lagt mikið í þetta og metnaður Vals liggur í að stefna á toppinn. Við viljum sigra í öllum mótum sem við tökum þátt í en stillum væntingar í hóf eftir efni og aðstæðum. Ég hald að efnið sé til staðar í dag og liðið sé gott. Það eru frábær lið þarna úti; FH, KR, Blikar, Stjarnan og fleiri lið. Það má ekki mikið út af bregða og við verðum að byrja grimmt, betur en við höfum gert undanfarin ár, til að skáka liðunum við toppinn. Ég hef fulla trú á mínum mönnum og að þjálfarateymið nái að stilla saman strengi svo við verðum mjög öflugir í sumar. Við höfum sýnt að við erum gott lið á góðum degi.“

Sjá einnig:
Óli Jó: Samkeppnisfærir um að vinna þetta mót
Hin Hliðin: Einar Karl Ingvarsson (Valur)
Klifraði í trjánum með Gunnari Nelson

Komnir:
Arnar Sveinn Geirsson frá Fram
Dion Acoff frá Þrótti R.
Nicolaj Köhlert frá Danmörku
Nicolas Bögild frá Vendsyssel
Sindri Björnsson frá Leikni R.
Sindri Scheving frá Reading

Farnir:
Andreas Albech til Sarpsborg
Daði Bergsson í Þrótt R.
Gunnar Gunnarsson
Ingvar Þór Kale í ÍA
Kristian Gaarde
Kristinn Freyr Sigurðsson í GIF Sundsvall
Rolft Toft
Tómas Óli Garðarsson í Leikni R.

Leikmenn Vals sumarið 2017:
1 Anton Ari Einarsson
2 Ásgeir Þór Magnússon
4 Einar Karl Ingvarsson
5 Sindri Björnsson
6 Nicolaj Beier Kohlert
7 Haukur Páll Sigurðsson
8 Kristinn Ingi Halldórsson
9 Nicolas Bögild
10 Guðjón Pétur Lýðsson
11 Sigurður Egill Lárusson
12 Nikolaj Hansen
13 Rasmus Christiansen
14 Arnar Sveinn Geirsson
15 Aron Gauti Magnússon
16 Dion Acoff
17 Andri Adolphsson
18 Sindri Scheving
20 Orri Sigurður Ómarsson
21 Bjarni Ólafur Eiríksson
22 Sveinn Aron Guðjohnsen
23 Andri Fannar Stefánsson
24 Aron Elí Sævarsson
30 Jón Freyr Eyþórsson

Leikir Vals 2017
30.apríl Valur – Víkingur Ó
8.maí ÍA – Valur
15.maí Valur – FH
22.maí Valur – KR
28.maí Grindavík – Valur
4.júní Valur – ÍBV
14.júní Breiðablik – Valur
18.júní Valur – KA
25.júní Fjölnir – Valur
9.júlí Valur – Stjarnan
16.júlí Víkingur R – Valur
23.júlí Víkingur Ó – Valur
31.júlí Valur – ÍA
8.ágúst FH – Valur
14.ágúst KR – Valur
21.ágúst Valur – Grindavík
26.ágúst ÍBV – Valur
10.sept Valur – Breiðablik
14.sept KA – Valur
18.sept Valur – Fjölnir
24.sept Stjarnan – Valur
30.sept Valur – Víkingur R

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Alexander Freyr Einarsson, Brynjar Ingi Erluson, Elvar Geir Magnússon, Hafliði Breiðfjörð, Kristófer Kristjánsson, Magnús Már Einarsson, Magnús Þór Jónsson.
Athugasemdir
banner
banner