Enzo Zidane, elsti sonur Zinedine Zidane, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann er aðeins 29 ára gamall en ætlar að einbeita sér að öðru en fótbolta.
Enzo lék síðast fyrir Fuenlabrada í þriðju efstu deild á Spáni.
Enzo hóf ferilinn í akademíu Real Madrid og hann lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins árið 2016. Þá var faðir hans þjálfari liðsins en Zinedine Zidane var einn besti fótboltamaður síns tíma, og einnig mjög öflugur þjálfari.
Strákurinn skoraði í sínum fyrsta leik og voru væntingarnar miklar, en það var erfitt að standast þær. Hann fékk ekki mörg tækifæri hjá Real Madrid og hefur síðustu árin spilað á Spáni, í Sviss, Portúgal og Frakklandi.
Enzo hefur ákveðið að hætta í fótbolta og ætlar að einbeita sér að fjölskyldunni og öðrum verkefnum, þar á meðal fjárfestingum sínum.
Athugasemdir