Þrír leikmenn Fram verða í leikbanni þegar liðið heimsækir KR á Meistaravelli á sunnudaginn, í neðri hluta Bestu deildarinnar.
Þar á meðal er Alex Freyr Elísson sem hefur verið funheitur í síðustu leikjum. Hann er annar leikmaðurinn til að vera dæmdur í bann vegna tíu gulra spjalda á þessu tímabili, á eftir Loga Hrafni Róbertssyni leikmanni FH sem verður í banni gegn Víkingi á morgun.
Aganefnd KSÍ kom saman í dag. Auk Alex verða Framarar án Guðmundar Magnússonar og Þorra Stefáns Þorbjörnssonar í leiknum gegn KR þar sem þeir verða líka í banni.

Silas Songani verður í banni hjá Vestra þegar liðið fær HK í heimsókn í mikilvægum fallbaráttuslag á sunnudag.
Athugasemdir