Arsenal vill Vlahovic - Howe orðaður við Man Utd - United hefur enn áhuga á Sesko
   mið 25. september 2024 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sextán ára Porter gæti byrjað í markinu hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal tekur á móti League One liði Bolton í enska deildabikarnum í kvöld og greinir Sky Sports frá því að hinn 16 ára gamli Jack Porter gæti byrjað á milli stanganna.

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, vill líklega hvíla David Raya eftir að hann varð fyrir hnjaski í 2-2 jafntefli gegn Manchester City um helgina.

Norberto Neto er varamarkvörður Arsenal en hann getur ekki spilað í deildabikarnum því hann er þegar búinn að spila í keppninni með öðru félagi (Bournemouth) á tímabilinu.

Þá ætti Tommy Setford, þriðji markvörður, að byrja leikinn en Sky greinir frá því að hann sé mögulega að glíma við smávægileg meiðsli.

Það skilur aðeins Jack Porter eftir, sem átti 16 ára afmæli í sumar og hefur aðeins einu sinni spilað fyrir varalið Arsenal. Hann er partur af U18 liðinu og þykir mjög efnilegur og var á varamannabekknum hjá Arsenal á útivelli gegn Atalanta í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner